Fyrstur til að deyja
Líf Lindsay Boxer, yfirvarðstjóra á morðdeildinni í San Francisco, tekur óvænta stefnu einn mánudagsmorgunn þegar hún fær erfiðar fréttir frá lækninum. Áður en hún nær að meðtaka tíðindin að fullu er hún boðuð á Grand Hyatt hótelið þar sem ung hjón hafa verið myrt með hrottalegum hætti á brúðkaupsnóttina. Við tekur eitt vandasamasta mál ferilsins sem kemur Lindsay í kynni við fréttkonuna Cindy Thomas, yfirréttarlækninn Claire Washburn og yfirréttardómarann Jill Bernhardt sem sameina krafta sína í von um að leysa gátuna. Fyrsta saga bókaseríunnar um Kvennamorðklúbbinn kom út árið 2001 en serían samanstendur af alls 23 bókum sem hafa verið þýddar á fjölda tungumála og notið vinsælda um allan heim. Kvennamorðklúbbinn skipa þær Lindsay Boxer, Cindy Thomas, Claire Washburn og Jill Bernhardt en saman leysa þær dularfull morðmál í heimabæ sínum, San Francisco. James Patterson (1947) er bandarískur rithöfundur. Hann gaf út sína fyrstu skáldsögu árið 1976 og hefur skrifað hundruði bóka í kjölfarið. Þótt Patterson sé þekktastur fyrir spennu- og glæpasögur skrifar hann innan fjölbreyttra bókmenntagreina, bæði fyrir börn og fullorðna. Hann er mikilvæg rödd í bókmenningu í Bandaríkjunum og talar gjarnan fyrir mikilvægi lestrar- og skrifkunnáttu barna. Í gegnum árin hefur Patterson veitt skólum, bókasöfnum og sjálfstæðum bókabúðum rausnarlegan stuðning í þágu góðra málefna.
1143005274

6.99
In Stock
5
1
Fyrstur til að deyja
253Fyrstur til að deyja
253eBook
$6.99
Related collections and offers
6.99
In Stock
Product Details
ISBN-13: | 9788728542064 |
---|---|
Publisher: | Saga Egmont International |
Publication date: | 03/10/2023 |
Series: | Kvennamorðklúbburinn , #1 |
Sold by: | De Marque |
Format: | eBook |
Pages: | 253 |
File size: | 809 KB |
Language: | Icelandic |
About the Author
From the B&N Reads Blog