Á tíma þar sem konur höfðu ekki kosningarétt, tilheyrðu eiginmanni sínum gagnvart lagabókstafnum og allar eignir þeirra og fé var í umsjá hans, gefur John Stuart Mill út hið nauðsynlega tímamótaverk Kúgun kvenna. Mill færir rök fyrir lagalegu og félagslegu jafnrétti milli karla og kvenna. Og að hinn lagalegi mismunur kynjanna; þeim misrétti sem kvennfólk stendur frammi fyrir, sé hin mesta hindrun fyrir framförum mannkynsins. Á þeim tíma er bókin kom út, árið 1869, ögraði hún hinum hefðbundnu félagslegu viðmiðum og hlutverkum kynjanna svo um munaði og hrykti í þeim stoðum svo eftir varð tekið um gjörvalla Evrópu.